|
Fyrsta IceMUN rástefnan var haldin á haustdögum 2003 af stjórnmálafræðinemum sem kynnst höfðu starfsemi MUN erlendis. Ráðstefnan var styrkt af Félagi Sameinuðu þjóðanna á Íslandi og utanríkisráðuneytinu og var tekin fyrir á henni umræða öryggisráðsins um stríðsátökin í Írak, en á þeim tíma stóðu hin raunverulegu átök hvað hæst. Norsku MUN samtökin hjálpuðu til við skipulagningu ráðstefnunnar sem sýnir glöggt mikilvægi samstarfs á milli þeirra MUN samtaka sem starfa á Norðurlöndunum.
IceMUN hélt aftur ráðstefnu árið 2004 þar sem átökin milli Ísraels og Palestínu voru rædd. Í það skipti var ekki einungis líkt eftir þingi öryggisráðsins heldur mannréttindaráðsins líka.
Eftir þessar tvær fyrstu ráðstefnur var ljóst að til þess að mögulegt væri að gera IceMUN að árlegum viðburði og byggja upp starfsemina á Íslandi yrði að stofna félagasamtök um reksturinn. Undirbúningur stofnunarinnar hófst haustið 2004og voru samtökin formlega stofnuð 1. mars 2005. Þeim var gefið það hlutverk að skipuleggja IceMUN ráðstefnur, viðhalda alþjóðlegri samvinnu og kynna starfsemina jafnt hérlendis sem erlendis.
Meðlimir IceMUN hafa tekið þátt í ráðstefnum um heim allan og komið að skipulagning og stjórnun ráðstefna á hinum Norðurlöndunum.
Frá stofnun hefur IceMUN vaxið jafnt og þétt og heldur núna árlega IceMUN ráðstefnu með fólki hvaðanæva úr heiminum, MenntóMUN fyrir áhugasama menntaskólanema og er í undirbúningi að halda BifMUN í fyrsta sinn í haust fyrir nememendur Háskólans við Bifröst.