|
Model United Nations (MUN) er vettvangur þar sem nemendur koma saman og setja á svið starfsemi helstu stofnanna Sameinuðu Þjóðanna á sem raunverulegastan hátt og takast á við aðkallandi vandamál í alþjóðasamfélaginu. Þátttakendum er deilt niður á ákveðin lönd og eru því sendifulltrúar þeirra landa.
Þátttakendur munu öðlast ómetanlega reynslu í að taka á aðkallandi vandamálum í hlutverki diplómata á vettvangi og eftir formreglum Öryggisráðs Sameinuðu Þjóðanna, og er þetta einstaklega spennandi tækifæri fyrir þá sem hafa áhuga á alþjóðasamskiptum og utanríkismálum. Hvatt er til þess að þátttakendur haldi sínum „karakter“ allan tímann, og auðvitað er öll ráðstefnan okkar haldin án áfengis. Ráðstefnan fer fram á ensku þar sem að enska er vinnutungumál Öryggisráðsins. Reynslan sýnir að fólk er mjög fljótt að ná upp góðum talanda. Þátttakendur fá einnig þjálfun í formreglum Öryggisráðsins ásamt fyrirlestrum um viðfangsefnið sem til umfjöllunar er frá sérfræðingum á því sviði.
IceMUN 2012 verður haldið 17.-19. febrúar 2012.
Að vanda verður forseti Íslands heimsóttur á Bessastaði, við bjóðum fulltrúum erlendra sendiráða á Íslandi í kaffi og hlýðum á áhugaverða fyrirlestra, auk þess að setja á svið starfsemi öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Að þessu sinni verður viðfangsefnið kjarnorkuáætlun Írans.