Um okkur

Model United Nations eru alþjóðleg samtök fyrir ungt fólk. Samtökin líkja eftir þingi Sameinuðu þjóðanna (e. academic simulation) með það að markmiði að fræða þátttakendur um stjórnarfar ríkja, alþjóðavæðingu, milliríkjasamskipti, ríkiserindrekstur og málefni líðandi stundar.

Á venjulegri MUN ráðstefnu setja þátttakendur sig í hlutverk diplómata og sitja fundi sambærilegum þeim sem fram fara í milliríkjastofnunum. Þeir leggjast í rannsóknarvinnu til að finna sem nákvæmastar upplýsingar um það land sem þeir eru fulltrúar fyrir, rökræða sín á milli og þróa að lokum lausnir á þeim vandamálum sem tekin eru fyrir á ráðstefnunni.

2010 © Allur réttur áskilinn