|
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
Fyrstu daga nýs skólaárs (1.-3. September) verður skipulögð nýnemadagskrá í Háskólanum á Bifröst þar sem IceMUN, í samvinnu við háskólann, munu setja upp hlutverkaráðstefnu með þátttöku allra nýnema og skiptinema sem hefja nám við skólann í haust. Ráðstefnan verður einnig opin þeim 2. Og 3. árs staðnemum sem hafa áhuga á þátttöku.
Ráðstefnan fer þannig fram að nemendum verður skipt í hópa þar sem hver hópur er fulltrúi ákveðins ríkis í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Sett verður upp fundaraðstaða sem mun líkja eftir fundum Öryggisráðsins og viðfangsefni kynnt til leiks sem þátttakendur þurfa að leysa úr með því að komast að samkomulagi milli þeirra þjóða sem eiga fulltrúa í Öryggisráðinu. Eins of venjan er með viðburði á vegum IceMUN mun ráðstefnan fara fram á ensku.
Stjórn IceMUN mun senda ítarlegri gögn og upplýsingar til allra þátttakenda þegar nær dregur.